Beint á leiðarkerfi vefsins

Agnar Kofoed-Hansen

Agnar Kofoed-Hansen lauk grunnnámi í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og meistaranámi í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet ásamt því að ljúka prófum í Sloan School of Management, M.I.T.

Agnar starfar sem framkvæmdarstjóri fjármála hjá HRV ehf. Hann var áður framkvæmdarstjóri Greiðslumats ehf. (2007, 2008) og framkvæmdarstjóri SPRON Factoring hf. frá 2000-2007. Á árunum 1998-2000 var hann deildarstjóri og stjórnarmaður hjá Lánstrausti og þar á undan framkvæmdarstjóri hjá Upplýsingaþjónustunni ehf, eða frá 1994-1998. Agnar stofnaði Greiðslumat ehf. árið 1992 og starfaði þar sem framkvæmdarstjóri til 1994. Hann var forstöðumaður Verðbréfadeildar Kaupþings hf. á árunum 1989-1991 og forstöðumaður Lánasviðs Iðnaðarbanka Íslands hf.  á árunum 1987-1989.