Beint á leiðarkerfi vefsins

Andri Geir Arinbjarnarson

Andri Geir Arinbjarnarson lauk BSc. í verkfræði frá Háskóla Íslands og útskrifaðist sem verkfræðingur frá Tækniháskólanum í Danmörku. Hann lauk MBA námi frá Stanford háskóla.
Andri Geir hefur starfað sem sjálfstæður ráðgjafi frá árinu 2006. Á árunum 2001-2006 var hann framkvæmdarstjóri hjá Search Value í London, en hann var einnig stofnandi þess fyrirtækis. Andri Geir gegndi ýmsum störfum hjá Whitehead Mann í London á árunum 1993-2001 þar sem hann var meðeigandi, en hann var meðal annars forstjóri, fjármálastjóri og yfirmaður upplýsingamála auk fleiri starfa. Frá 1989-1991 starfaði Andri Geir hjá McKinsey & Co. í London og New York og var markaðsráðgjafi hjá IBM í Reykjavík 1985-1986. Á árunum 1984-1985 var hann verkefnastjóri hjá Danish Steel Ltd. í Frederiksværk.