Gunnar Helgi Hálfdanarson
Gunnar Helgi Hálfdanarson er formaður bankaráðs Landsbankans. Hann er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í rekstrarhagfræði (MBA) frá McMaster University í Ontario í Kanada. Gunnar Helgi starfaði sem framkvæmdarstjóri hjá AllianceBernstein Investments, með aðsetur í Stokkhólmi og megináherslu á þróun viðskiptasambanda við helstu bankasamstæður Norðurlanda og íslenska lífeyrissjóði frá 1999-2009. Hann var framkvæmdastjóri sjóðasviðs Landsbanka Íslands frá 1997-1999 og forstjóri Landsbréfa hf. frá 1989-1999.

