María Lóa Friðjónsdóttir
María Lóa Friðjónsdóttir útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskóalanum á Bifröst árið 2006 og lauk meistaraprófi í stjórnun í alþjóðlegu fyrirtækjaumhverfi frá Háskólanum á Akureyri árið 2010.María Lóa starfaði sem fyrirtækjaráðgjafi á sölusviði hjá Intrum á Íslandi á árunum 2007-2010. Á árunum 2005-2007 var hún skrifstofustjóri og staðgengill sparisjóðsstjóra hjá Sparisjóði Skagafjarðar. María Lóa var framkvæmdarstjóri í átaksverkefni hjá Stefnu ehf. á Akureyri árið 2005 og framkvæmdastjóri upplýsingamiðstöðvar ferðamála á Norðurlandi vestri sumarið 2004. Á árunum 2001-2003 starfaði hún á rekstrarsviði Byggðastofnunar og var skrifstofustjóri í afleysingum hjá Vegagerðinni á Norðurlandi vestra árið 2000-2001. María Lóa var framkvæmdarstjóri og eigandi sólbaðsstofunnar Lindarinnar heilsustúdíós og Gallerís Lindar frá 1997-2001. Hún var markaðs-, þjónustustjóri og staðgengill útibússtjóra í Landsbankanum árin 1982-1998.

