Ragnar Þorgeirsson
Ragnar Þorgeirsson lauk prófi í iðnrekstrarfræði frá Tækniskóla Íslands árið 1991 og B.A. prófi í opinberri stjórnsýslu frá Háskólanum í Álaborg árið 1997. Hann lauk meistaranámi í alþjóðaviðskiptafræði frá sama skóla árið 2000.Ragnar var framkvæmdarstjóri PricewaterhouseCoopers ehf á árunum 2005-2011. Hann var framkvæmdarstjóri IcePro á árunum 2003-2005 og viðskiptastjóri hjá GoPro-Group frá 2000 -2003.

