Sigríður Hrólfsdóttir
Sigríður Hrólfsdóttir er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í rekstrarhagfræði (MBA) frá Kaliforníuháskóla í Berkeley. Sigríður hefur verið framkvæmdastjóri Árvakurs frá árinu 2009. Hún var framkvæmdarstjóri fjárfestinga- og fjármálasviðs Tryggingamiðstöðvarinnar 2007-2008. Sigríður starfaði hjá Eimskipafélagi Íslands frá 1998-2004, fyrst sem forstöðumaður fjárreiðudeildar og frá 2000 sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Hún starfaði við fjárstýringu hjá Íslandsbanka 1994-1998.

