Þorbjörg Inga Jónsdóttir
Þorbjörg Inga Jónsdóttir útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1993. Þorbjörg Inga hefur einnig hlotið diploma í alþjóðarétti frá Háskólanum í Helsinki og mannúðarétti frá alþjóðaráði Rauða krossins. Hún stundaði einnig viðskipta- og rekstarnám hjá Endurmenntunarstofnunar Háskóla Íslands á árunum 1997-2000. Þorbjörg Inga hefur starfað sem hæstaréttarlögmaður á Lagaþingi, eigin lögmannstofu, frá árinu 2001 og verið stundakennari í kröfurétti o.fl. við Háskólann á Bifröst frá 2007. Hún var framkvæmdastjóri Fasteignasölu Mosfellsbæjar 1998-2001. Á árunum 1996-2001 var hún héraðsdómslögmaður hjá Lögbæ, en hún var einnig eigandi þeirrar stofu. Þorbjörg Inga starfaði sem lögfræðingur hjá Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytis á árunum 1992-1996.