Þórdís Ingadóttir
Þórdís Ingadóttir útskrifaðist úr lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1993. Hún stundaði
framhaldsnám við New York School of Law þar sem hún var Fulbright-styrkþegi. Þaðan lauk hún LLMprófi
árið 1998 í International Legal Studies. Frá árinu 2006 hefur hún stundað doktorsnám í lögfræði
við Helsinki-háskóla.
Þórdís hefur verið dósent við Lagadeild Háskólans í Reykjavík frá árinu 2004. Árið 2004 starfaði hún á lagaskrifstofu Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins. Að loknu framhaldsnámi við New York University starfaði hún sem lögfræðingur við skólann frá 1999-2003 (The Project on International Courts and Tribunals (PICT), the Center on International Cooperation). Þórdís var fulltrúi á Lögfræðiskrifstofu Ásgeirs Þórs Árnasonar hrl. og Óskars Magnússonar hrl. árin 1993-1995 og starfaði við lögfræðiráðgjöf fyrir Félag einstæðra foreldra 1992-1993. Þórdís hefur skrifað fjölda fræðigreina og bókarkafla.

