Beint á leiðarkerfi vefsins

Þorgeir Pálsson

Þorgeir Pálsson útskrifaðist úr sjávarútvegshagfræði frá Nordland Distrikt Höyskole árið 1998. Hann lauk prófi í International Management frá Norwegian School of Management árið 1989 og lauk MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2008. Þorgeir er eigandi Thorp ehf. og starfar þar sem framkvæmdarstjóri og rekstrarráðgjafi. Hann var framkvæmdarstjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða árin 2008-2010 og stjórnunarráðgjafi hjá IMG Ráðgjöf (nú Capacent) á árunum 2004-2006. Þorgeir var meðeigandi og framkvæmdarstjóri ICECON ehf. á árunum 2001-2004 og starfaði sjálfstætt við rekstrarráðgjöf 2000-2001. Hann var markaðsathugunarstjóri hjá Útflutningsráði Íslands (nú Íslandsstofa) frá 1991 – 1994 en þá tók hann við starfi forstöðumanns sjávarútvegssviðs. Á árunum 1989-1991 var hann aðstoðarmaður markaðsstjóra hjá Marel hf. og síðar sölustjóri yfir Bretlandi og Spáni.