Beint á leiðarkerfi vefsins

Landsbankinn

Landsbankinn var stofnaður í kjölfar neyðarlaganna þann 8. október 2008 til að halda utan um innlendar innstæður og meirihluta íslenskra eigna gamla Landsbanka Íslands hf. Upphaflega var lögheiti bankans NBI hf. en því var breytt í Landsbankinn hf. á aðalfundi í apríl 2011. Íslenska ríkið er eigandi 81,33% hlutafjár bankans og 18,67% hlutafjár er í eigu Landsskila (eignarhaldsfélag skilanefndar Landsbanka Íslands hf.)
Eiginfjárframlag ríkisins nemur 122 milljörðum króna sem var annars vegar greitt með reiðufé að fjárhæð 775 milljónir króna og hins vegar með skuldabréfi að fjárhæð 121.225 milljónir króna.

Fjórir af fimm stjórnarmönnum bankans eru tilnefndir af Bankasýslu ríkisins. Þeir eru Gunnar Helgi Hálfdánarson, formaður, Sigríður Hrólfsdóttir, varaformaður, Andri Geir Arinbjarnarson og Þórdís Ingadóttir

 Landsbankinn - helstu tölur úr efnahagsreikningi


Tengdar fréttir

29.4.2011

Samningur Bankasýslu ríkisins við stjórn Landsbankans

Eitt af verkefnum Bankasýslu ríkisins er að gera samninga um almenn og sértæk markmið í rekstri þeirra fjármálafyrirtækja þar sem stofnunin skipar meirihluta stjórnarmanna.