Sparisjóður Norðfjarðar
Lokið var við fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Norðfjarðar þann 28. júni 2010 með undirritun samkomulags við Seðlabanka Íslands.
Stofnfé sjóðsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu var 625,8 m.kr. og var fjöldi stofnfjáraðila 86. Heildareignir sjóðsins voru 5.377 m.kr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins var 22%.
Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkissjóðs í sparisjóðnum sem myndaðist við fjárhagslega endurskipulagningu auk þess sem hlutur Byggðastofnunar var færður yfir til Bankasýslunnar og fer hún því með 49,5 % af stofnfé sjóðsins.
Fulltrúar Bankasýslu ríkisins í stjórn Sparisjóðs Norðfjarðar eru Árný Bergsdóttir og Hákon Björnsson.
Tengdar fréttir
20.2.2012
Stofnfjáreigendafundur Sparisjóðs Norðfjarðar
Fundur stofnfjáreigenda Sparisjóðs Norðfjarðar var haldinn fimmtudaginn 19. janúar 2012.

