Beint á leiðarkerfi vefsins

Sparisjóður Svarfdæla

Lokið var við fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Svarfdæla þann 21. desember 2010 með undirritun samkomulags við Seðlabanka Íslands.

Stofnfé sparisjóðsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu er 424,4 m.kr. og er fjöldi stofnfjáraðila 152.  Heildareignir sjóðsins eru 3.834 mkr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins er 10,5%.

Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkisins í sparisjóðnum sem myndaðist við fjárhagslega endurskipulagningu og fer hún með 90% af stofnfé sjóðsins.

Stjórnarmenn í Sparisjóði Svarfdæla eru Helga Björk Eiríksdóttir, formaður, Valdimar Snorrason, Kristján Pétur Kristjánsson, Þröstur Jóhannsson og Borghildur Freyja Rúnarsdóttir. Varamenn eru Óskar Óskarsson, Bára Höskuldsdóttir, Sigurlaug Stefánsdóttir, Svana Halldórsdóttir og Jón Ingi Sveinsson.

SpSvar - helstu tölur