Beint á leiðarkerfi vefsins

Sparisjóður Þórshafnar og nágr.

Lokið var við fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis þann 21. desember 2010 með undirritun samkomulags við Seðlabanka Íslands

Stofnfé sparisjóðsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu er 258,2 mkr. og er fjöldi stofnfjáraðila 92. Heildareignir sjóðsins eru 2.669,1 mkr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins er 16% og bókfært eigið fé 304,2 mkr.

Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkisins í sparisjóðnum sem myndaðist við fjárhagslega endurskipulagningu auk þess sem hlutur Byggðastofnunar var færður yfir til Bankasýslunnar og fer hún því með 75,9 % af stofnfé sjóðsins.

Fjórir af fimm stjórnarmönnum eru skipaðir af Bankasýslu ríkisins. Þeir eru María Lóa Friðjónsdóttir, Hólmgeir KarlssonRagnar Þorgeirsson og Auður Hörn Freysdóttir.

 SpÞór - helst tölur


Tengdar fréttir

4.5.2011

Aðalfundur Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis fyrir starfsárin 2009 og 2010

Aðalfundur Sparisjóðs Þórshafnar og nágrennis fyrir starfsárin 2009 og 2010 var haldinn miðvikudaginn 13. apríl 2011. Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam um 510 milljónum króna en tap var á rekstrinum árið 2009 og nam það 373 milljónum króna.