Beint á leiðarkerfi vefsins

Sparisjóður Vestmannaeyja

Lokið var við fjárhagslega endurskipulagningu Sparisjóðs Bolungarvíkur þann 10. desember 2010 með undirritun samkomulags við Seðlabanka Íslands.

Stofnfé sparisjóðsins eftir fjárhagslega endurskipulagningu var 1.004,5 m.kr. og var fjöldi stofnfjáraðila 85. Heildareignir sjóðsins voru 14.716 mkr. Eiginfjárhlutfall sjóðsins var um 16,8 %.

Bankasýsla ríkisins fer með eignarhlut ríkisins í sparisjóðnum sem myndaðist við fjárhagslega endurskipulagningu og fer hún með 55,3% af stofnfé sjóðsins.

Þrír af fimm stjórnarmönnum eru skipaðir af Bankasýslu ríkisins. Þeir eru Kristín Guðmundsdóttir, formaður, Stefán S. Guðjónsson og Þorbjörg Inga Jónsdóttir.

 SpVest - helstu tölur


Tengdar fréttir

11.4.2011

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja fyrir árið 2010

Aðalfundur Sparisjóðs Vestmannaeyja fyrir starfsárið 2010 var haldinn fimmtudaginn 31. mars 2011. Á aðalfundinum kom fram að hagnaður síðasta árs nam 900 milljónum króna.