Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Tillaga til ráðherra um sölu á 13% eignarhlut í Arion banka hf. - Fréttir

19.2.2018

Tillaga til ráðherra um sölu á 13% eignarhlut í Arion banka hf.

Bankasýsla ríkisins sendi í dag tillögu til fjármála- og efnahagsráðherra um að selja Kaupskilum ehf. 13% eignarhlut ríkisins í Arion banka hf. vegna nýtingar á kauprétti félagsins samkvæmt hluthafasamkomulagi frá árinu 2009 og undirriti samning um uppgjör kaupréttarins.

Það er niðurstaða stofnunarinnar að Kaupskil ehf. hafi einhliða, ótvíræðan og fortakslausan samningsbundinn rétt til að kaupa hlut íslenska ríkisins í Arion banka hf. á grundvelli fyrrgreinds hluthafasamkomulags. Í hluthafasamkomulaginu kom fram hvernig kaupréttarverðið skyldi reiknað út. Undirliggjandi forsendur voru að ríkissjóður skyldi ávaxta upphaflegt hlutafjárframlag (áskriftarverð) sitt til bankans miðað við tiltekna vexti, 5% áhættuálag og árafjölda.

Stofnunin hefur yfirfarið útreikning á kaupréttarverðinu og fengið staðfestingu Grant Thornton á því. Niðurstaðan er að kaupréttarverð, miðað við uppgjör þann 21. febrúar nk., er  23.422.585.119 kr. sem er sama verð og birtist í tilkynningu Kaupskila ehf. um nýtingu kaupréttarins.

Frekari rökstuðning má sjá í tillögunni sem er hér með gerð opinber. 

Nánari upplýsingar gefur Jón G. Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, í síma 550-1701. 

Tenglar:

Tillaga til ráðherra

Hluthafasamkomulag

Breyting á hluthafasamkomulagi

Staðfesting Grant Thornton

Tilkynning Kaupskila