Um valnefndina
Stjórn Bankasýslu ríkisins skipar sérstaka þriggja manna valnefnd sem tilnefnir aðila fyrir hönd ríkisins sem rétt hafa til setu fyrir hönd þess í bankaráðum eða stjórnum fyrirtækja á forræði stofnunarinnar.
Valnefndin leitar eftir aðilum að eigin frumkvæði en einnig geta aðilar, sem telja sig uppfylla skilyrði fyrir stjórnarsetu, gefið kost á sér með því að senda valnefndinni ferilskrár sínar. Nöfn þeirra aðila sem nefndin leitar til eða sent hafa inn upplýsingar um sig verða vistuð hjá valnefndinni. Aðili sem gefið hefur kost á sér til setu í stjórn fjármálafyrirtækis fyrir hönd ríkisins getur hvenær sem er farið þess á leit við valnefndina að upplýsingum um hann hjá nefndinni verði eytt.
Að uppfylltum hæfisskilyrðum koma ofangreindir aðilar til greina sem stjórnarmenn fyrir hönd ríkisins þegar á þarf að halda. Stjórn Bankasýslu ríkisins óskar formlega eftir tilnefningum valnefndar um stjórnar- og bankaráðsmenn fyrir stjórnarkjör í hlutaðeigandi bankaráðum eða stjórnum. Valnefndin tilnefnir í hvert sinn tvo til þrjá aðila fyrir hvert sæti sem losnar í stjórnum eða bankaráðum.
Við ákvörðun um tilnefningu á stjórnarmanni leggur valnefndin mat á hæfni aðila m.a. að teknu tilliti til hversu mikla yfirsýn, þekkingu og reynslu viðkomandi hefur í tengslum við fyrirtækjarekstur og starfshætti fjármálafyrirtækja. Nefndin tekur ennfremur mið af þörfum hvers fyrirtækis fyrir sig og skal tilnefna stjórnarmenn sem hafa fjölbreyttan bakgrunn hvað varðar menntun og hæfni. Aðili sem valnefndin tilnefnir sem stjórnarmann í tilteknu fjármálafyrirtæki skal uppfylla hæfisskilyrði 52. gr. laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, og í þeim tilvikum sem fjármálafyrirtæki eru hlutafélög, hæfisskilyrði stjórnarmanna sem tilgreind eru í lögum um hlutafélög nr. 2/1995.
Nánar er fjallað um valnefnd og störf hennar í 7. gr. laga nr. 88/2009 um Bankasýslu ríkisins og í starfsreglum valnefndar.

